Sunnudaginn 7. september verður kynningarmessa kl. 11 fyrir væntanleg fermingarbörn og foreldra þeirra. Þá verða fermingarbörnin boðin velkomin til þátttöku í fermingarfræðslunni sem bæði fer fram í fræðslustundunum á virkum dögum og með þátttöku í helgihaldi safnaðarins. Eftir messuna verður stuttur fundur í safnaðarheimilinu þar sem kynnt verður nánar fyrirkomulag fræðslunnar í vetur.
Sunnudagaskólinn er byrjaður og er alla sunnudaga kl. 11. Það eru þau Nína, Karen, Linda og Jóhann sem sjá um sunnudagaskólann. Börnin taka þátt í upphafi messunnar en fara síðan niður í safnaðarheimili og halda samveru sinni áfram þar. Öll börn sem koma í sunnudagaskólann fá fallega bók sem þau safna límmiðum í yfir veturinn. Það er mikið sungið og föndrað í sunnudagaskólanum og auðvitað kemur Rebbi refur oft í heimsókn.