Fyrsta samvera okkar í félagsstarfinu, Maður er manns gaman, verður n.k. miðvikudag klukkan 13:30. Við hefjum starfið með því að taka í spil og spjalla saman. Eftir stundina munum við hittast annan hvern miðvikudag í kirkjunni, en dagskrá vetrarins verður sett inn síðar í vikunni. Það er góð hugmynd að bjóða vinum og kunningjum með í kirkjuna og eiga þar stund saman, því maður er jú manns gaman.
Kyrrðarstundirnar eru á sínum stað, á hverjum miðvikudegi klukkan 12:00. Eftir hana er léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu.
Kirkjuprakkarar mæta í kirkjuna klukkan 16:00. Þá ætlum við að masa saman um það sem gerðist hjá okkur í fríinu og skoða nýju prakkarabækurnar okkar.
Já það er svo sannarlega kátt í kirkjunni þegar við hittumst þar.