Á morgun, miðvikudag, verður margt um að vera í kirkjunni. Kyrrðarstundin verður á sínum stað og hefst kl. 12:00. Eftir hana er léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu.
Félagsskapurinn Maður er manns gaman er öllum opinn. Samverurnar eru haldnar hálfsmánaðarlega og hefjast klukkan 13:30. Við ætlum að hittast á morgun og spila, spjalla, föndra og von er á góðum gestum. Allir hjartanlega velkomnir og hvernig væri nú að bjóða nágrannanum með?
Kirkjuprakkarar hittast á sínum hefðbundna tíma klukkan 16:00. Skemmtileg stund fyrir alla krakka á aldrinum 7-9 ára. Nýir krakkar eru ávallt velkomnir.
Gönguhópurinn mætir galvaskur klukkan 19:30 og tekur góðan hring í hverfinu u.þ.b. 40 mínútna ganga. Það er fátt eins gott til að næra líkama og sál og að fara í gönguferð. Komdu með.