Kynningarmessa fyrir væntanleg fermingarbörn og foreldra þeirra verður næst komandi sunnudag 6. september kl. 11. Að lokinni messunni verður fundur með foreldrum fermingarbarnanna þar sem sagt verður frá uppbyggingu fermingarfræðslunnar í vetur. Prestar kirkjunnar þjóna og organistinn leiðir kórinn í söng.
Sunnudagaskólinn er byrjaður á ný eftir sumarfrí og verður á sama tíma og messurnar kl. 11. Fjársjóðskistan er á sínum stað og brúðurnar koma í heimsókn. Djús og kaffi eftir stundina í safnaðarheimilinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Nína Björg, Karen og Linda.