Sunnudaginn 25. október verða tvær guðsþjónustur í kirkjunni. Kl. 11 verður fjölskyldumessa í umsjón sr. Bryndísar Möllu Elídóttur og Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna. Sungnir verða söngvar og sálmar úr Barnasálmabókinni og lesin saga úr Biblíunni að hætti sunnudagaskólans. Eftir stundina er boðið upp á kaffi, te, djús og kex í safnaðarheimilinu.
Tómasarmessa verður kl. 20. Yfirskrift þeirrar messu er: Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa. Stór hópur fólks kemur að undirbúningi og þjónustu Tómasarmessunnar. Mikilvægur þáttur messunnar er fyrirbæn og lofgjörð sem allir geta tekið þátt í. Kaffi og te í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Allir hjartanlega velkomnir.