Messa kl. 11 sunnudaginn 1. nóvember á allra heilagra messu. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, messuþjónar taka virkan þátt í messunni. Organisti er Julian E. Isaacs og kór kirkjunnar syngur. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Sunnudagaskóli kl. 11 með sögum, söng, bænum og brúðum. Fjársjóðsleitin er að sjálfsögðu á sínum stað. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Nína Björg djákni og Linda Rós. Börn á öllum aldri hjartanlega velkomin. Djús, kex og ávextir í lok stundarinnar.