Sunnudaginn 25. apríl verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna. Fjársjóðsleit og brúður koma í heimsókn. Öll börn fá sögu með sér heim úr Biblíunni. Djús og kaffi í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustunni.
Síðasta Tómasarmessa vetrarins verður nk. sunnudag kl. 20. Yfirskrift messunnar er „Hryggð mun snúast í fögnuð“. Þorvaldur Halldórsson leikur á hljómborðið og sönghópur leiðir almennan söng. Fyrirbænin skipar stóran sess í Tómasarmessunni og margir hafa reynt þá blessun sem í henni er falin. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Allir velkomnir.