Alla miðvikudaga klukkan 16:00 hittast Kirkjukrakkar hér í kirkjunni. Þá er mikið leikið, föndrað, sungið og síðast en ekki síst förum við inn í kyrrðarherbergið. Þar sitjum við á pullum á gólfinu og hlustum á Biblíusögu eða hlustum á þögnina. Það er svo gott að kunna að sprella og hafa fjör og kunna svo líka að slaka á. Allir krakkar á aldrinum 6-9 ára eru velkomnir – alltaf hægt að bætast í hópinn.
Í hádeginu á miðvikudögum er boðið uppá kyrrðar- og bænastundir í kirkjunni. Stundirnar hefjast klukkan 12:00 með tónlist. Lesið er úr Biblíunni, flutt hugvekja, borin er fram máltíð Drottins og að lokum er fyrirbænastund. Fyrirbænaefnum er hægt að koma til okkar í síma 587-1500 eða í stundinni sjálfri. Eftir kyrrðarstundina er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.