Styrktartónleikar fyrir líknarsjóð kirkjunnar verða haldnir laugardaginn 11. desember kl. 17. Fram koma: Kirkjukórinn, Eldri barnakórinn og Broskórinn. Einsöngvari Gunnhildur Halla Baldursdóttir. Stjórnandi kóranna er Julian E. Isaacs. Einnig mun nýstofnað tríó flytja jólalög. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en tekið á móti frjálsum framlögum í líknarsjóðinn. Að tónleikunum loknum verður kökubasar í anddyri kirkjunnar en allur ágóði hans mun einnig renna í líknarsjóð kirkjunnar. Njótum þess að koma til kirkju á aðventunni og hlýða á fagra tóna sem ylja líkama og sál í skammdeginu.