Annan hvern miðvikudag hittast vinir í kirkjunni í félagsskap sem kallast ,,Maður er manns gaman´´. Félagsskapurinn er hugsaður fyrir 65 ára og eldri en allir eru velkomnir að vera með í hópnum. Nú á miðvikudaginn verður haldin þorragleði. Hún hefst klukkan 12:30, beint á eftir kyrrðarstundinni, með harmonikkuleik. Þorramatur verður á borðum og félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni mæta á gleðina. Verð er 2.500 krónur. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 587-1500.
Kyrrðarstund er alla miðvikudaga og hefst hún klukkan 12:00. Athugið að á n.k. miðvikudag verður þorragleði beint á eftir kyrrðarstundinni og því engin súpa á eftir. Allir eru velkomnir á þorragleðina, sjá hér að ofan.
Kirkjukrakkar hittast alla miðvikudaga klukkan 16:00 í kirkjunni. Boðið er upp á að fylgja þeim börnum sem eru í Bakkaseli í kirkjuna og foreldrar sækja þá börnin í kirkjuna klukkan 17:00. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt, biblíusögur sagðar, farið í leiki, föndrað, settar upp leiksýningar svo eitthvað sé nefnt. Kirkjukrakkar taka vel á móti nýjum félögum og það er alltaf hægt að bætast í hópinn.