Næstkomandi miðvikudag (23. febrúar) bjóða Kirkjukrakkar fjölskyldum sínum á leiksýningu í kirkjunni. Vegna þessa hefst Kirkjukrakkafundurinn klukkan 17:00 þennan dag.
Vinahópurinn Maður er manns gaman hittist annan hvern miðvikudag í safnaðarheimili kirkjunnar. Þetta eru samverustundir eldri borgara sem hefjast klukkan 13:30 og þeim lýkur um 15:00. Tekið er hlýlega á móti nýjum vinum. Miðvikudaginn 23. febrúar ætlum við að spila, spjalla og grípa í handavinnu. Það verður heitt á könnunni. Vertu velkomin/nn.
Kyrrðarstundir eru alla miðvikudaga klukkan 12:00. Samfélag við borð Drottins, Guðs orð, tónlist og fyrirbæn. Eftir stundina er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.