Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 sunnudaginn 27. febrúar. Stúlkur úr TTT sýna dans og leikræna tjáningu, mikill söngur og frásögn úr bók bókanna, Biblíunni. Hressing í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
Tómasarmessa kl. 20. Yfirskrift messunnar er: Orð Guðs til þín. Messan markar upphaf kristniboðsvikunnar og eru allir vinir kristniboðsins hvattir til þátttöku í messunni. Boðið verður upp á fyrirbæn með smurningu og handayfirlagningu. Tónlistin verður í höndum Þorvaldar Halldórssonar og tónlistarhóps úr KSS.