Í dag miðvikudaginn 11. janúar verður kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Hugrún djáknanemi mun flytja hugleiðingu og aðstoða við útdeilingu. Hádegisverður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.
Samvera eldri borgar hefst síðan kl. 13:30. Á dagskrá í dag verða spil og handavinna en einnig notalegt spjall yfir kaffisopa og meðlæti. Kynnt verður dagskrá vormisseris þar sem margt áhugavert kemur fram.
TTT hefst einnig í dag eftir jólafrí. TTT er fyrir alla krakka tíu til tólf ára. Samverurnar eru í safnaðarheimilinu á miðvikudögum milli kl. 16 og 17 .