Bæna- og kyrrðarstund hefst klukkan 12. Tónlist, fyrirbænir, hugleiðing og máltíð Drottins. Í kyrrðarstundinni sameinast margir í bæn og styrkjast í trú, von og kærleika. Eftir stundina er boðið upp á léttan hádegismat í safnaðarheimili kirkjunnar.
Klukkn 13:30 hefst páskaeggja bingó í samverustund hjá Maður er manns gaman. Samverustundirnar, sem eru haldnra annan hvern miðvikudag, eru hluti af safnaðarstarfi kirkjunnar og eru allir hjartanlega velkomnir í stundirnar.
TTT hópurinn ætlar að labba í Salalaug og fá sér sundsprett. Lagt verður af stað frá kirkjunni klukkan 15:45.
Kirkjukórinn æfir alla miðvikudaga klukkan 19:30 í kirkjunni.