Sunnudagurinn 25. mars:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 – látum ljós okkar skína! Hressir krakkar úr TTT taka virkan þátt ásamt börnum úr Forskóla fermingarfræðslunnar sem starfað hefur í marsmánuði. Skoðað verður í fjársjóðskistuna og fundinn þar dýrmætur fjársjóður. Allir krakkar hvattir til þess að hafa með sér vasaljós! Örn organisti, Nína Björg djákni og Bryndís Malla prestur leiða stundina. Pálínuboð í lokin þar sem allir leggja eitthvert meðlæti á sameiginlegt hlaðborð.
Tómasarmessa kl. 20 – boðunardagur Maríu. Fyrirbæn með handayfirlagningu, einnig verður boðið upp á smurningu sbr. Jak. 5:14. Tónlistinni stjórnar Þorvaldur Halldórsson og sönghópur leiðir lofgjörðina. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Yfirskirft messunnar eru orð engilsins til Maríu: Drottinn er með þér.