Kyrrðar- og bænastund verður í kirkjunni n.k. miðvikudag og hefst hún klukkan 12 með tónlist. Í stundinni er hægt að koma fram með bænarefni, þiggja máltíð Drottins og hlýða á hugleiðingu út frá ritningartexta dagsins. Eftir stundina er boðið uppá létta hádegishressingu í safnaðarheimilinu.
Klukkan 13:30 hefst samverustund hjá félagsskapnum Maður er manns gaman. Stundirnar eru hluti af almennu safnaðarstarfi og eru því allir velkomnir á þær. Við fáum fyrirlestur frá Þjóðminjasafninu sem Helga Einarsdóttir safnkennari mun flytja. Erindi hennar ber heitið „Í þá gömlu góðu daga“, einnig gefst okkur tækifæri á að skoða gamla muni sem hún tekur með sér úr safninu. Spjall og vöfflukaffi í lok stundarinnar. Allir velkomnir.