Fimmtudaginn 20. september hefst Biblíulestraröð á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Starfs- og leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar í safnaðarheimili Breiðholtskirkju. Um er að ræða 10 kvölda námskeið og stendur frá kl. 20-22 hvert fimmtudagskvöld til 22. nóvember. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um tilurð, efni og byggingu valdra texta úr Gamla- og Nýja testamentinu. Um er að ræða þá ritningarlestra sem lesnir eru upp í guðsþjónustum á því tímabili sem námskeiðið stendur. Umsjón og kennslu annast dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir hjartanlega velkomnir.