Miðvikudaginn 12. desember verður kyrrðarstund kl. 12. Stundin hefst á því að organisti kirkjunnar leikur vel valin verk á orgelið og síðan er ritningarlestur, stutt hugleiðing, máltíð Drottins og fyrirbæn. Prestar og djákni kirkjunnar taka á móti bænarefnum hvort sem er í síma 587 1500 eða fyrir stundina á morgun.
Kl. 13:30 hefst síðan aðventustund eldri borgara. Rithöfundarnir Ingibjörg Reynisdóttir og Eyrún Ingadóttir koma í heimsókn og segja frá bókum sínum um Gísla á Uppsölum og Ljósmóðurina Þórdísi Símonardóttur. Þóra Björk Sigurðardóttir mætir með gítarinn og syngur með og fyrir okkur jólalög. Hátíðarkaffi og notalegt spjall í lokin. Allir velkomnir.
Kl. 16 mæta kirkjukrakkarnir í sína samveru og halda litlu jólin í safnaðarheimilinu. Gengið verður kringum jólatré og boðið upp á heitt súkkulaði, kökur og mandarínur.
Kl. 17:30 koma hressir TTT krakkar og leggja lokahönd á undirbúning helgileiksins sem sýndur verður í kirkjunni á annan dag jóla. Litlu jólin verða einni haldin með söng og gleði, súkkulaði og kræsingum.