Föstudaginn 9. janúar verður fyrsti foreldramorguninn á þessu ári og verða slíkar samverur síðan milli kl. 10 og 12 alla föstudaga til vors. Um er að ræða opið hús í safnaðarheimilinu þar sem foreldrar geta komið með börn sín. Góð aðstaða er í og við kirkjuna fyrir vagna og kerrur, einnig eru dýnur og leikföng í safnaðarheimilinu. Alltaf er notalegt spjall yfir te eða kaffibolla en stundum koma góðir gestir í heimsókn með fræðslu sem snýr að umönnun eða uppeldi barna. Umsjón með starfinu hefur Emilía G. Svavarsdóttir. Sjón er sögu ríkari, verið velkomin á foreldramorgna í Breiðholtskirkju.