Næsta sunnudag verður ferming kl. 11 í Breiðholtskirkju.
Sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr. Pétur Ragnhildarson þjóna fyrir altari.
Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju leiða tónlistina.
Það er alltaf hátíð í kirkjunni þegar ungmenni taka þá ákvörðun að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins og fermast níu fermingarbörn á sunnudaginn.
Messa Alþjóðlega safnaðarins á ensku kl.14:00. Gengið verður til altaris í messunni.
Prestar: sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir og Toshiki Toma
Organisti: Örn Magnússon