Næsta sunnudag, 7. júlí er göngumessa í Fella- og Hólakirkju.
Gengið verður frá Seljakirkju kl. 10:00 til messu í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00.
Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og prédikar.
Kór Fella- og Hólakirkju leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Arnhildar organista.
Eftir stundina verður boðið uppá messukaffi í safnaðarheimilinu.
Allir eru velkomnir til guðsþjónustunnar, hvort sem þeir taka þátt í göngunni eða ekki!
Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þetta er síðasta göngumessan sumarið 2024.