Sunnudaginn 25. ágúst verður kvöldmessa kl. 20 í Fella-og Hólakirkju, sr. Jón Ómar Gunnarsson, sóknarprestur, þjónar og kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur, organista. Um er að ræða sameiginlegt helgihald safnaðanna í Breiðholtsprestakalli, en Fella-og Hólakirkja ásamt Breiðholtskirkju mynda saman Breiðholtsprestakall. Helgihald í ágústmánuði er sameiginlegt og verður sameiginleg messa í Breiðholtskirkju þann 1. september n.k. kl. 11. Frá 8. september verða messur á sunnudögum í Breiðholtskirkju kl. 11 og í Fella-og Hólakirkju kl. 20.