Næsta sunnudag verður ekki messa á hinum hefðbundna messutíma heldur verður kvöldmessa kl. 20:00.
Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og prédikar.
Íris Rós Ragnhildardóttir leiðir tónlistina.
Hugljúf og nærandi kvöldstund í tjaldkirkjunni okkar.
Ensk messa alþjóðlega safnaðarins verður á sínum stað kl. 14:00.
Prestur: Sr. Toshiki Toma.
Í Fella- og Hólakirkju verður sameiginleg fjölskyldumessa kl. 11:00. Þar verður mikið stuð og eru allar fjölskyldur velkomnar, ekki síst þau sem hafa verið að mæta í sunnudagaskólann í Breiðholtskirkju.