Næsta sunnudag er bleik messa kl. 11:00.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari og prédikar.
Félagar úr kór Breiðholtskirkju leiða tónlistina undir stjórn Arnar Magnússonar organista.
Kirkjan tekur þátt í átaki Bleiku Slaufunar til stuðnings Krabbameinsrannsóknum. Hvetjum alla kirkjugesti að mæta í bleiku.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarsalnum! Það er alltaf gleði og gaman.
Verið hjartanlega velkomin næsta sunnudag.
Ensk messa alþjóðlega safnaðarins kl. 14:00.
Prestur: Sr. Toshiki Toma.
Organisti: Örn Magnússon.