Næsta sunnudag verður helg stund í kirkjunni okkar kl. 20:00.
Kór Breiðholtskirkju undir stjórn Arnar Magnússonar organista flytur huggunarríka tónlist.
Minningarstund látinna ástvina fer fram í guðsþjónustunni við kertaljós.
Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari.
Verið hjartanlega velkomin.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í safnaðarheimilinu kl. 11:00 í umsjón Nönnu og Fannars.
Ensk messa alþjóðlega safnaðarins kl. 14:00.
Prestar: Sr. Toshiki Toma og sr. Pétur Ragnhildarson.
Organisti: Örn Magnússon.