Trú, tónlist og myndlist

Biblíulestrar í Breiðholtskirkju á fimmtudagskvöldum 

 

Biblíulestrar verða á fimmtudögum Í Breiðholtskirkju klukkan 20 – 22 og hefjast 23. janúar og verða til 27. mars. Þeir eru á vegum héraðsprests, dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar.

Í Breiðholtskirkju verður haldin fyrirlestraröð eða biblíulestur á vegum héraðsprests prófastsdæmisins. Megin efni fyrirlestranna að þessu sinni verður um tónlist, myndlist og trú.

Hlustað verður á fyrsta hlutann í Jólaóratoríu Bachs (BVW 248) og guðfræðilegar útleggingar Bachs reifaðar. Auk þess verður áfram hugað að nokkrum lykilspurningar sem snerta þróun myndlistar á 19. og 20. öld m.a. að málaranum Caspar David Friedrich og verða  trúarleg þemu innan hennar skoðuð. Auk þess mun dr. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur halda fyrirlestra, um trúarstef í Njálu og Egill Arnarson heimspekingur mun halda áfram að greina frá áhrifasögu Richards Wagners. Stefán Karlsson mun fjalla um glímu trúarinnar í nútímasamfélagi andspænis kröfu samtímans. Í öllum þessum erindum verður á einn eða annan máta tekið tillit til áhrifa til hins Biblíulega boðskapar á menningu og þróun innan vestrænnar menningar.

Boðið verður upp á kaffi og umræður að loknum fyrirlestrum. 

Í stað þátttökugjalds er vonast til að fólk nýti forvitni sína og áhuga