Sunnudaginn 5. október verður messa og sunnudagaskóli kl.11. Prestur er sr. Gísli Jónasson og organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar syngur. Í messunni mun fyrsti messuhópurinn taka virkan þátt en það starf er nú að hefjast í Breiðholtskirkju. Að lokinni messu verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarheimilinu. Í sunnudagaskólanum verður fjársjóðskistan dregin fram og skoðað hvað leynist í henni að þessu sinni. Umsjón með barnastarfinu hafa Nína Björg, Karen Ósk, Linda Rós og Jóhann. Börn á öllum aldri eru velkomin í sunnudagaskólann.