Opið hús eldri borgara

Alla Miðvikudaga kl. 12:00 – 15:00.

Alla miðvikudaga eru kyrrðarstundir kl. 12:00. Eftir það er farið niður í safnaðarsalinn þar sem boðið er upp á hádegisverð gegn vægu gjaldi.

Eldri borgarastarfið hefst í kjölfarið og þar er glens, gleði og lífsins alvara í fyrirrúmi. Við fáum oft góða gesti með áhugaverð erindi. Steinunn Þorbergsdóttir djákni, sr. Pétur Ragnhildarson, Arna Ingólfsdóttir kirkjuvörður og Emilía Svavarsdóttir, húsmóðir kirkjunnar hafa umsjón með samverunum.