Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Örn Magnússon. Stúlkur úr barnakór kirkjunnar syngja og auk þess taka hressir krakkar úr kirkjukrakkastarfinu virkan þátt. Hressing í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.
Tómasarmessa kl. 20. Er hægt að sjá Guð? Hvað heldur þú? Tómasarmessan leitar svara í orði Drottins og í máltíð Drottins. Einnig má leita persónulegra svara í fyrirbæninni sem boðið er upp á í messunni. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina og leiðir söfnuðinn í lofgjörð til frelsarans. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Verið velkomin í kirkju á sunnudaginn og takið með ykkur gesti!