Miðvikudagurinn 27. febrúar:
Kyrrðarstund kl. 11, tónlist, hugleiðing og fyrirbæn. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu í lokin.
Samvera eldri borgara kl. 13:15, spil, handavinna og spjall yfir kaffibolla. Leynigestur kemur í heimsókn!
Kirkjukrakkar á aldrinum 7 til 9 ára kl. 16, leyniverkefnið í fullum gangi, hvað verður gert í dag?
TTT fyrir hressa tíu til tólf ára krakka kl. 17:30, æfum leikrit fyrir æskulýðsdaginn, allir að mæta með sparibrosið!
Kirkjukórsæfing kl. 19:30, kórinn æfir af kappi fyrir afmælistónleikana 17. mars.