Messa kl. 11 sunnudaginn 9. mars. Sr. Gísli Jónasson þjónar og messuhópur tekur virkan þátt ásamt fermingarbörnum. Örn Magnússon er organisti og félagar úr kór kirkjunnar syngja. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifsdóttur. Sögð verður saga úr Biblíunni, mikið sungið og ef til vill kemur Tófa eitthvað við sögu. Límmiði og mynd til þess að lita og ávaxtahressing í lok stundarinnar.