Fjölbreytt dagskrá verður á aðventukvöldi safnaðarins 30. nóvember kl. 20. Tendrað verður á fyrsta aðventuljósinu og fermingarbörnin sýna táknrænan helgileik um ljósið sem skýn í myrkrinu. Kór kirkjunnar flytur aðventu- og jólatónlist undir stjórn organistans Arnar Magnússonar. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni og framkvæmdastjóri Eldriborgararáðs flytur hugleiðingu kvöldsins. Stundinni lýkur á ljósastund meðan sunginn er jólasálmur. Hollvinafélag kirkjunnar mun ásamt sóknarnefndinni bjóða upp á heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. Aðventuhátíðin er ómissandi í upphafi aðventunnar og gefur yndislegt tækifæri fyrir fjölskylduna að eiga notalega og uppbyggilega stund við upphaf undirbúnings jólanna.