Sunnudaginn 25. janúar verða tvær guðsþjónustur í kirkjunni.
Kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur, djákna, og Steinunnar Leifsdóttur. Sögð verður saga úr Biblíunni og mikið sungið af sunnudagaskólalögum og barnasálmum. Allir fá fallegan límmiða á nýja bænaplakatið og í lokin verður hressing í safnaðarheimilinu.
Kl. 20 verður Tómasarmessa sem ber yfirskriftina „Áhyggjur – umhyggja„. Hr. Karl Sigurbjörnsson, biskup, prédikar og Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt sönghópi, en Tómasarmessurnar einkennast af fjölbreyttum söng og tónlist. Fyrirbænin skipar stóran sess í messunni og hægt er að bera fram fyrirbænaerefni og þiggja fyrirbæn hjá presti, djákna eða öðru bænafólki. Stór hópur fólks tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd messunnar, en Tómasarmessan hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og margir sótt styrk og blessun í boðskap hennar. Í lok messunnar er boðið upp á te og molasopa í safnaðarheimilinu. Verið hjartanlega velkomin!