Sunnudaginn 25. október verða tvær guðsþjónustur í kirkjunni eins og jafnan er síðasta sunnudag í mánuði:
Kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í umsjá í umsjá Steinunnar Leifsdóttur, íþróttakennara og Steinunnar Þorbergsdóttur, djáknakandídats. Sögð verður saga úr Biblíunni, Konni eða aðrir góðir gestir kíkja í heimsókn og mikið verður sungið af sunnudagaskólalögum og barnasálmum við undirleik Sigursveins Magnússonar. Allir fá fallegan límmiða á plakatið sitt og í lokin verður hressing í safnaðarheimilinu.
Kl. 20 Tómasarmessa – Hvað með kraftaverkin? Önnur Tómasarmessa vetrarins er helguð þessari mikilvægu spurningu og mun sr. Magnús Björn Björnsson prestur í Digraneskirkju prédika. Gott tækifæri gefst í Tómasarmessunni til þess að biðja og fá fyrirbæn fyrir því sem hver og einn ber með sér. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina og lofgjörðina í messunni ásamt sönghópi. Tómasarmessan er um margt frábrugðin hefðbundinni sunnudagsmessu og er henni ætlað að gefa nýja nálgun og upplifun þátttakenda á orði Guðs og anda. Eftir messuna er boðið upp á te og molasopa í safnaðarheimilinu þar sem hægt verður að spjalla saman og ræða nánar um efni messunnar við presta, djákna eða aðra sem tóku þátt í messunni. Verið velkomin í Tómasarmessurnar í vetur!