Miðvikudaginn 22. apríl klukkan 14:00 hefst hátíð í kirkjunni sem ber yfirskriftina Vetur kvaddur. Hátíðin er samstarfsverkefni Breiðholtskirkju, félagsstarfsins í Gerðubergi og Árskógum og Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Kynnir á hátíðinni verður sr. Gísli Jónasson.
Allir eru hjartanlega velkomnir í kirkjuna, aðgangur er ókeypis.
Hægt er að sjá dagskrá hátíðarinnar ef smellt er á lesa áfram hér fyrir neðan.
Dagskrá:
- Kvennakórinn Senjórítur, stjórnandi Ágota Joó.
- Leikskólinn Arnarborg, skólahópurinn syngur 3 lög.
- Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppni grunnskólanna í Breiðholti lesa upp.
- Nemendur úr Tónskóla Sigursveins leika á hljóðfæri.
- Gerðubergskórinn syngur stjórnandi Kári Friðriksson.
- Sönghópur frá Félagsmiðstöðinni Árskógum syngur nokkur lög og leiðir fjöldasöng undir stjórn Elsu Haraldsdóttur.
Eftir skemmtiatriðin býður Breiðholtskirkja upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu.