Síðasta fjölskylduguðsþjónusta vetrarins verður næstkomandi sunnudag 26. apríl kl.11. Þá er tilvalið að mæta með uppáhalds bangsann sinn enn allir bangsar fá sérstakt hlutverk á sunnudaginn. Kirkjuprakkararnir ætla að færa kirkjunni að gjöf fallega bænabók sem þau hafa útbúið í vetur. Barnakórarnir báðir ætla að syngja og ýmislegt fleira verður til uppbyggingar og blessunar.
Síðasta Tómasarmessan að sinni verður á sunnudaginn kl. 20. Í messunni verður fjölbreytt tónlist, fyrirbæn, orð Guðs og máltíð Drottins. Kaffi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Gleðilegt sumar