Í dag verður síðasta bænaguðsþjónustan á þriðjudögum í Breiðholtskirkju. Lengi vel voru bænaguðsþjónusturnar á þriðjudögum kl. 18 en færðust síðan fram um hálftíma, en þessar guðsþjónustur hafa verið í Breiðholtskirkju allt frá því kirkjan var vígð árið 1988 eða í tuttugu ár. Á þeim tíma hefur verið beðið fyrir fjölmörgum í þessum guðsþjónustum og margir sem komið hafa og tekið þátt, þó að fámennt hafi verið í bænaguðsþjónustunum að undan förnu. Næsta haust verða ákveðnar breytingar á helgihaldi kirkjunnar með tilkomu messuhópanna.
Kyrrðarstundirnar verða áfram á sínum stað á miðvikudögum kl. 12, þar er einnig fyrirbænaþjónusta.