Sunnudagsmessur falla niður í júlí og fram í ágúst vegna sumarleyfa og viðhalds kirkju. Alla miðvikudaga eru hins vegar kyrrðarstundir kl. 12 með ritningarlestri, hugleiðingu, fyrirbæn og máltíð Drottins. Eftir kyrrðarstundirnar er boðið upp á létta hressingu í safnaðarheimilinu. Fyrirbænum má koma á framfæri við presta kirkjunnar í síma 587 1500. Viðtalstímar eru milli 11 og 12 þriðjudaga til föstudaga. Sr. Gísli er í sumarfríi í júlí og þá leysir sr. Bryndís Malla hann af. Farsími hennar er 892 2901.