Sunnudaginn 11. október verður sunnudagaskólinn kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar, Lindu og Karenar. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni samhliða messunni en síðan fara börnin niður í safnaðarheimilið og eiga sína stund þar, með fjársjóðsleit, sögum, söng og bænum.
Í messu sunnudagsins þjónar sr. Gísli Jónasson og leggur út af orðum Jesú í Markúsarguðspjalli 10. kafla versun 17-27. Þar kemur meðal annars fram hin þekkta staðhæfing Jesú að auðveldara sé fyrir úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríkið. Organisti að þessu sinni er Kristína Waage og kór kirkjunnar syngur. Tekið verður við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar sem renna mun óskert til innanlandsaðstoðar. Boðið verður upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu að lokinni messu og sunnudagaskóla.