Á fyrsta sunnudegi í aðventu 29. nóvember verður fjölskylduguðsþjónusta með sterkum kærleiksboðskap kl. 11. Tendrað verður á fyrsta aðventuljósinu, Spádómskertinu, fjárhúsið í Betlehem verður sett upp, broskórinn syngur og jólasagan lesin. Sr. Bryndís Malla Elídóttir og Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni þjóna og Julian E. Isaacs leikur á orgelið.
Aðventukvöld verður kl. 20 með fjölbreyttri dagskrá. Anna M. Axelsdóttir flytur hugleiðingu, kirkjukórinn syngur og Ragnar Bjarnason flytur nokkur jólalög. Fermingarbörn sýna helgileik og eldri barnakórinn syngur. Kvöldinu lýkur síðan í safnaðarheimilinu þar sem sóknarnefndin býður upp á heitt súkkulaði og smákökur.