,,Aðalsafnaðarfundur Breiðholtssóknar verður haldinn fimmtudaginn 12.maí 2022 kl.19:00.
Fundurinn verður haldinn í safnaðarsal kirkjunnar.
Dagskrá fundarins:
Lögbundin aðalfundarstörf
Önnur mál
Rétt til fundarins eiga allir þeir sem búa í Breiðholtssókn í Reykjavík og eru skráðir í Þjóðkirkjuna.
Verið velkomin að taka þátt í umræðu um störf kirkjunnar.
Sóknarnefnd“.