Næsta sunnudag verður ferming kl. 11 í Breiðholtskirkju.
Sr. Jón Ómar Gunnarsson og Steinunn Þorbergsdóttir djákni þjóna.
Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju leiða tónlistina.
Það er alltaf hátíð í kirkjunni þegar ungmenni taka þá ákvörðun að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins og fermast ellefu fermingarbörn á sunnudaginn.
Messa Alþjóðlega safnaðarins á ensku kl.14:00.
Prestur: Sr. Toshiki Toma.