Næsta sunnudag verður guðsþjónusta kl. 11:00 í Breiðholtskirkju.
Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, þjónar fyrir altari og prédikar.
Kór Breiðholtskirkju leiðir almennan söng undir stjórn Arnar Magnússonar organista.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Nönnu æskulýðsfulltrúa og Fannars Smára.
Ensk messa í alþjóðlega söfnuðinum kl. 14:00.
*Áætlaðri kveðjumessu sr. Ásu Laufeyjar var frestað vegna óráðanlegra ástæðna.
Prestur: sr. Toshiki Toma.
Organisti: Örn Magnússon.
Verið velkomin í Breiðholtskirkju.