Leiga á safnaðarsal
Safnaðarheimili kirkjunnar er á neðri hæð og er það leigt út fyrir veislur, fundi, samkomur eða aðra mannfagnaði. Salurinn tekur u.þ.b. 120 manns í sæti, hægt er að skipta honum í stærri og minni sal. Góð aðstaða er í salnum og í eldhúsi.
Allar nánari upplýsingar gefur kirkjuvörður, þriðjudaga til föstudaga í síma 587 1500 eða á breidholtskirkja@kirkjan.is.