Biblíulestrar og prédikunarundirbúningur
Þriðjudagar kl. 10:15 og fimmtudagar kl. 20:00. Prédikunarklúbburinn hefst þriðjudaginn 13. september, en biblíulestrarnir fimmtudaginn 22. september 2022.
Á þriðjudögum kl. 10:15 fer dr.dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur yfir þá biblíutexta sem lesnir verða í guðsþjónustu næsta sunnudags eða næsta helga dags, auk þess sem postmodernisma samtímans mun bera á góma annað slagið.
Á fimmtudögum kl. 20: Birtingarmynd táknheims kristninnar og myndlist verður megin viðfangsefni biblíulestra á haustmisseri. Málverkum má vel líkja við texta sem fólk þarf jafnt að geta lesið og túlkað. Í biblíulestrunum mun Dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur skoða sérstaklega íslenska abstraktlist. Það verður leitast við að ljúka upp táknheimi þeirra í tengslum við skírskotanir sem finna má í þeim til ritningar, tíðaranda og viðkomandi samtíðar.
Í biblíulestrunum mun auk þess Dr. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur fjalla í fyrirlestri um trúarstef í bókmenntum og Stefán Karlsson um álíta mál í samtímanum í samhengi við þýðingar sem hann vinnur að.
Hér er á ferðinni spennandi námskeið þar sem leitast er við að svara spurningum þeirra sem vilja vita meira.
Á námskeiðinu verður boðið upp á fyrirlestur og síðan verða umræður um efnið yfir kaffibolla þar sem þátttakendur eru hvattir til að leggja til umræðunnar.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Fyrirlestrarnir eru í Breiðholtskirkju á fimmtudagskvöldum klukkan 20–22. Alls er um 10 skipti að ræða, frá 22. september til 24. nóvember.